Aðstaða
- Móttakan er opin frá kl. 11:00 til kl. 22:00 alla daga vikunnar
- Veitingarstaðurinn opinn frá kl. 11:30 - 21:00 (lokað milli 15:00 - 16:00)
- Tékk inn eftir klukkan 14:00, tékk út fyrir kl. 10:00
- Veitingastaður, kaffihús og bar
- Morgunverðarhlaðborð yfir sumartímann
- Þráðlaust net
- Bókunarþjónusta
- Þvottaaðstaða - laundromat
- Gufubað
- Tösku- og skíðageymsla fyrir gesti
- Hárþurrkur við sturtur
- Sameiginlegar snyrtingar
HERBERGIN
Akureyri Backpackers býður upp á gistingu bæði í svefnpokaplássum í svefnsölum og í tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum. Gistingu í svefnsölunum fylgir koddi og lak og því er leyfilegt að hafa með sér svefnpoka eða sæng. Einnig er hægt að leigja sæng gegn vægu gjaldi. Hingað er fjölskyldufólk sérstaklega velkomið en börn yngri en 18 ára verða að vera í fylgd með forráðamönnum. Börn yngri en 12 ára geta ekki gist í svefnsölum þar sem aðrir óskyldir gestir dvelja.
Á jarðhæðinni er móttakan okkar, upplýsingamiðstöð, veitingastaður og bar með þráðlausu interneti. Rúmgóð og snyrtileg sturtuaðstaða ásamt sauna eru í kjallara hússins, en þar er einnig skíðageymsla.
Tveggja manna eða eins manns herbergi
Þessi herbergi eru alltaf uppbúin og mögulegt að bæta við bedda í herbergin. Hægt er að fá barnarúm lánað hjá okkur en það þarf að panta fyrirfram.
Fjögurra, sex og átta manna herbergi
Hægt er að velja um þrjár stærðir af herbergjum. Gist er í kojum þar sem lak og koddi fylgir en hægt er að leigja sér sæng gegn vægu gjaldi.
Fjölskylduherbergi
Við bjóðum fjölskyldum með börn yngri en 16 ára fjögurra og sex manna kojuherbergi. Þetta getur verið hagkvæmur kostur í fjölskylduferðalaginu. Hafðu samband við okkur með tölvupósti á akureyri@backpackers.is, eða í síma 571-9050, fyrir frekari upplýsingar um fjölskylduherbergi eða bókaðu á netinu.
Hópar
Akureyri Backpackers er tilvalið gistihús fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum. Hjá okkur dvelja skólahópar, íþróttahópar, vinahópar og vinnuhópar allt árið. Við gerum þá kröfu að fullorðnir fararstjórar gisti með gestum sem eru yngri en 18 ára.